Skólinn byrjar í næstu viku ;)

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30

Vinir...

Við sundstelpurnar
Beta
Hildur
Diljá
Jón Helgi
Gummi Hafþórs
Ægir Máni
Kolla 'Yr
'Iris Edda
Hafdís Erla
María Björk
Sigga Valdimars
Sunddrottningar
Hildur bandaríska
Sigurbjörg

Lítil kríli...

Aurelia Rebekka
Hafdís Sól

'Ymislegt :)

Myndaalbúmin okkar
Mjög flottar gjafir

Krakkarnir okkar :)

Andri Bergmann
Ragnar Ágúst og Ólöf Kristín


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Wednesday, February 14, 2007
Afmælisstelpa :)

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Bíbí, hún á afmæli í dag :)

Innilega til hamingju með daginn sæta :)

Þúsund kossar og knús... Louisa ;)


Posted at 14.2.07 by 2isaksen
Comments (3)  

Thursday, February 08, 2007
Allt að ske :)

Það er bara eitthvað að ske á þessari síðu... hehe :)

Héðan er allt gott að frétta, nóg að gera i skólanum... Erum i þverfaglegu verkefni núna og þurfum að keyra alla leið til Vordingborg!!! Bara ein vika eftir :)

Annars er okkur búið að hlakka til helgarinnar... Mamma og pabbi hans Ísaks komu í dag og við förum og hittum þau á laugardaginn í köben, svo koma þau á sunnudag og sjá nýju íbúðina okkar. Pabbi keypti harðfisk og lifrapilsu handa mér.... jibbi :) get ekki beðið!

Við erum búin að koma okkur vel fyrir í nyju íbúðinni, keyptum rosa flott stofuborð og svona... Hlakka bara til þegar myndirnar eru komnar upp og svona, þá verður þetta aðeins heimilislegra!

Bíbí vertu dugleg að skrifa... Og pøj, pøj i prófinu á morgun :)

Knús litla systir!


Posted at 8.2.07 by 2isaksen
Tjáðu þig ;)  

Friday, February 02, 2007
Heimsókn norður

Þá er Arnar farinn :-/   Hann og pabbi kíktu hérna aðeins við, voru að vinna.  Pabbi fór snemma en Arnar var áfram.  Yngri fjölskyldumeðlimirnir voru hæstánægðir með þessa heimsókn og voru frekar daufir í dálkinn þegar Rúbbi fór í gær.

Framkvæmdir:  Við erum búin að setja íbúðina á sölu, reyndar hefur ekkert verið að gerast á fasteignamarkaðnum hér frekar en annars staðar. Held að heilar 12 íbúðir hafi verið seldar í desembermánuði. Reyndar liggur okkur ekkert á, ákváðum bara að setja hana á skrá og sjá hvað gerist.

Næst á dagskrá er að finna nafn á svæðið okkar inn í sveit, það er alveg ótrúlega erfitt, mun erfiðara en að finna nafn á barnið sitt. Öggi stakk upp á Örlygsstöðum sem reyndar er vel við  hæfi en engin ákvörðun hefur verið tekin.

Núna er bara beðið eftir vetrarfríinu með óþreyju sem verður eftir 3 vikur. 

Bíbí og co.


Posted at 2.2.07 by 2isaksen
Comment (1)  

Tuesday, December 12, 2006
Sammála... ;/

Þetta lýst mér á Bíbí ;) Það er vonandi að fólkið fari að trúa á okkur aftur og ekki gefist upp, hehe...

Já það er búið að vera nóg að gera... Ég fór í munnlegt próf í nóvember sem gekk rosa vel. Ég var í praktik á vökudeild og fyriburadeild... það var æðislegt að fá að vinna með þessi pínu litlu kríli ;) Þetta er sko mín deild... algjör draumur að fá að vinna þarna sem hjúkka!

Litli bróðir og Sigrún voru hjá mér í síðustu viku... það var algjört æði að fá þau til mín... við náðum að kaupa jólagjafirnar og halda saman upp á afmælið hans Rúbba ;) Strákurinn orðinn 19.ára :) Þegar þau fóru heim, komu mamma og pabbi til mín ;) það var frábært... Maður er ekkert smá dekraður af þeim... Þau eru svo mikið æði... Við skelltum okkur í jólativolí og Tommi hitti okkur í Køben :) Tommi kom svo til okkar á sunnudaginn og gisti hjá okkur ;) Hvað haldiði að við gerðum? Ég, mamma og Tommi fylltum 4 ferðatöskur af glösum og öðru brothættu og gengum með í nýju íbúðina, hehe... Held það eru ekki margir sem hafa flutt svona... gengið með ferðatöskur, hehe ;)

En við flytjum á laugardaginn og ég vona við þurfum ekki að labba, hehe.... Nei Halldór er svo alminnilegur að redda okkur bíl og ætlar að hjálpa okkkur ;)

Annars komum við heim 20des... verðum til 3jan... Hlakka ekkert smá til að koma heim í jólastuðið ;)

Jæja stóra systir... vertu dugleg að skrifa... :) Smiler..

Þúsund kossar og knús

Louisa


Posted at 12.12.06 by 2isaksen
Comments (4)  

Monday, December 11, 2006
2 latar - 2 Isaksen

Jæja, þá er spurning hvort við ættum að fara að breyta nafninu á síðunni...  Síðast skrifað í september. Jæja, ekki hissa þó fólk hafi gefist upp á okkur Louísa og sé hætt að kíkja á síðuna. 

Hér fyrir norðan er allt hvítt, frétti áðan að það sé enginn snjór á leiðinni suður.  Eingöngu snjór hér á norðurhluta landsins.  Sem mér finnst alveg æðislegt, ætla að reyna að komast á bretti og skíði fljótlega með körlunum mínum þ.e. Ögga og Ragnari.

Skólinn gengur bara sinn vanagang, gaman að kenna 1. bekk. Það tekur stundum á þolinmæðina en er alveg þess virði. Þau eru alveg yndisleg þessi kríli.

Það gengur allt mjög vel og ég veit að það er allt gott að frétta af Ísak og Louísu. Þau eru bara búin að vera í því að taka á móti fólki undanfarið. Arnar og Sigrún kíktu um daginn og núna eru mamma og pabbi hjá henni. Tommi kíkti meira að segja til hennar um helgina.  Leyfi henni að segja ykkur frá því.

kær kveðja

Bíbs


Posted at 11.12.06 by 2isaksen
Tjáðu þig ;)  

Saturday, September 16, 2006
Haha ;)

Í hverju er hamingjan fólgin?

 

Hvernig gera á konu hamingjusama :

Það er ekki erfitt, að gera konu hamingjusama, þú þarft bara að

vera:

 

1.         vinur

2.         félagi

3.         ástmaður

4.         bróðir

5.         faðir

6.         húsbóndi

7.         yfirmaður

8.         rafvirki

9.         trésmiður

10.        pípari

11.        handlaginn

12.        skreytimeistari

13.        stílisti

14.        sérfræðingur í kynlífi

15.        mannþekkjari

16.        sálfræðingur

17.        hagfræðingur

18.        reiknimeistari

19.        góður huggari

20.        góður hlustandi

21.        skipuleggjari

22.        góður faðir

23.        snyrtilegur

24.        samúðarfullur

25.        sportlegur

26.        hlýr

27.        skemmtilegur

28.        aðlaðandi

29.        snillingur

30.        fyndinn

31.        hugmyndaríkur

32.        mjúkur

33.        sterkur

34.        skilningsgóður

35.        þokkafullur

36.        prúður

37.        metnaðarfullur

38.        hæfileikaríkur

39.        þolgóður

40.        skynsamur

41.        trúr

42.        ábyggilegur

43.        ástríðufullur

 

...........og gleymir aldrei að:

 

44.       gefa henni gjafir reglulega

45.       fara með henni að versla

46.       vera heiðarlegur

47.       vera örlátur

48.       að stressa hanna ekki

49.       horfa ekki á aðrar konur

 

og um leið þá verðurðu líka að:

 

50.       veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um Sjálfan þig

51.       gefa henni allan tíma sem hún þarf

52.       gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer.

 

Það er mjög áríðandi:

 

53.       að gleyma aldrei:

 

   1.         afmælisdögum

   2.         brúðkaupsdögum

   3.         plönum sem hún hefur ákveðið

 

TIL AÐ GERA KARLMANN HAMINGJUSAMANN :

 

1.         Gefa honum að borða

2.         Sjá til að hann fái það reglulega

3.         og þegja svo....


Posted at 16.9.06 by 2isaksen
Comments (2)  

Á eyrinni ;)

Jæja þá er ég búnað vera á Akureyri í 3vikur! Ekkert smá fljótt að líða! Það er búið að vera rosa gaman og gott að vera hjá systu og frændsystkinunum ;) Það á eftir að vera eitthvað skrítið þegar ég fer!

Annars erum við systurnar að fara til Þýskalands með Ísak og mömmu og pabba. Ákváðum að skella okkur til Bodo núna þegar hann er að fara að gifta sig!!! Við förum næstu helgi, en brúðkaupið er á laugardaginn ;) þetta verður rosa stuð held ég, við getum allavega ekki beðið!

Það fer samt að líða að því að ég fari heim... fer 2.okt, þannig ég vona ég fái að hitta ykkur öll áður en ég fer... þið vitið hver þið eruð ;)

Jæja kanski Bíbí fari  að láta heyra í sér á síðunni??? hehe ;) sjáum til!

Kveðja litla systirin ;)


Posted at 16.9.06 by 2isaksen
Comments (2)  

Tuesday, August 22, 2006
Sumarið líður allt of fljótt...

Ohhh.... þá er sumarið að verða búið!!!

Skólinn byrjar á mánudag... þá fer ég í vettvangsnám á Sjúkrahúsinu á Akureyri ;) Þetta er 5vikna vettvangsnám... það verður spennandi að kynnast þessu hérna á klakanum!

Annars er búið að vera nóg að gera... Búin að hitta næstum alla vinina og svona... Svo beilaði ég á menningarnótt og fór bara upp í bústað... nennti ekki meiri látum í bænum! Það var æðislegt að liggja í pottinum í algjörri kyrrð uppi í sveit!

Familian kemur heim í kvöld... búnað vera ein heima í 2vikur á meðan þau voru að sóla sig á spáni!

Held að ég skelli mér til Þýskalands í næsta mánuði í brúðkaups til Bodo... Kallinn að farað gifta sig!!! Mar má nú ekki missa af því!!! Held að Tommi ætli með mér og svona... Það verður stuð!!!

Hey veit eitthver um far fyrir mig norður??? Ef svo er þá megiði láta mig vita... takk...

Knusser mig, Louisa

 

 


Posted at 22.8.06 by 2isaksen
Tjáðu þig ;)  

Friday, August 04, 2006
Brúðkaupsmyndir

Búin að setja nokkrar brúðkaupsmyndir inn...

kv.litla systir...


Posted at 4.8.06 by 2isaksen
Comments (3)  

Thursday, August 03, 2006
Bíbí orðin frú ;)

Jæja þá skrifar maður loksins... Búið að vera nóg að gera!

Ísak er orðinn sjúkraþjálfari, en fyrsti vinnudagurinn hans var í dag! Hann stendur sig svo vel strákurinn!

Það er margt búið að ske.... Ég kom á klakann um miðjan júni og gæsaði Bíbí, fór svo heim og kláraði skólann.

Svo skelltum við Ísak okkur í 2vikur til Grikklands... lúxus... Algjör afslöppun, þetta var æðislegt ;) Leigðum okkur skellinöðru í einn dag og keyrðum um hálfa eyjuna og fórum í dropahella ferð... annars var bara slakað á ;)

Komum svo til Íslands og Bíbí gifti sig. Stelpan orðin frú!!! Hún var ekkert smá falleg og flott ;) Allt gekk vel og frábær veisla! Hún fær að segja betur frá þessu sjálf.

Núna er Ísak farinn aftur út :( hann þurfti að farað vinna! En ég verð eitthvað áfram á klakanum...

Jæja... hafið það gott í rigningunni... ;) knús og kossar Louisa


Posted at 3.8.06 by 2isaksen
Tjáðu þig ;)  

Previous Page Next Page